Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Ekki kjósa hræsnina á stjórnlagaþing

vinnumadurÞað vill svo til að Vinnumálastofnun stendur fyrir því að auglýsa á vef sínum,eftir ódýru vinnuafli.

Ég er sjálfur búinn að upplifa þetta,því þau fyrirtæki sem þarna auglýstu og ég hafði samband við vegna atvinnu,voru að bjóða langt undir lágmarkstöxtum,en það er skýrt brot á kjarasamningum.

Það er þannig að þessi fyrirtæki auglýsa ekki í öðrum fjölmiðlum,sjálfsagt til þess að láta reyna á það fyrst,hvort ekki fáist ódýrt vinnuafl í gegnum vef VMST,en það virðist vera sem VMST sé ekkert að athuga hvort verið sé að fylgja kjarasamningum eða brjóta á skjólstæðingum þeirra.

Það virðist ekki vera samstarf á milli stéttarfélaganna og VMST varðandi þetta,eftir því sem ég kemst næst.

Þarna er ein vitleysan enn sem tengist þessari stofnun og var þó alveg næg fyrir.

Það hefur verið talað um það manna á milli að það fækki lítið atvinnuauglýsingunum,því munurinn á milli lágmarkslauna og atvinnuleysisbóta sé svo lítill.

Svo er annað,að vinnuveitendur senda þá heim fyrst sem eru á hæstu laununum,í sumum tilfellum hafa útlendingar gengið fyrir vinnu og íslendingarnir verið sendir heim.

Það er vonandi að stéttarfélögin geri eitthvað róttækt í þessum málum.

Viljið þið fá svona stjórnendur á Stjórnlagaþing?

SS sveitirnar fara sínu fram

Það er leikið við sadistana,þeir fá ekki eipha185000004nu sinni refsingu við hæfi,alið á ofbeldinu í lögreglunni.
mbl.is Fór offari við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2007 - Hringavitleysa

Það er áfram sama peningastefnan sem er viðhöfð,lán til þess að borga lán,engin verðmætasköpun og hvernig verður brugðist við flótta fólks úr sveitarfélaginu....að sjálfsögðu...hækka allt sem fyrir er og þyngja enn frekar byrðarnar hjá þeim sem eftir sitja.
mbl.is Hafnarfjörður taki lán til að greiða annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ekki er til mikið af peningum

148412_1564245157648_1580961047_1306600_52587_nNú er hægt að kaupa ódýr og falleg föt á börnin fyrir jólin.

Blómabörn er verslun með notaðan barnafatnað og var opnuð 14.mars 2009 . Eigandi er Arnbjörg Högnadóttir. Verslunin er staðsett á Bæjarhrauni 2, í Hafnarfirði.

Barnafatabúðin Blómabörn opnaði þann 14.Mars á síðasta ári,að Bæjarhrauni 10,en er nú flutt í glæsilegt húsnæði að Bæjarhrauni 2,spölkorn frá gamla staðnum,það hefur verið nóg að gera og jákvæð viðbrögð frá byrjun,ekki síst vegna kreppunnar.

Jólafötin komin í búðina ,opið frá 11-16 í dag,laugardag á Bæjarhrauni 2

Einnig er opið suma Laugardaga en það er nánar auglýst á Facebook undir nafninu Blómabörn Barnafataverslun.
Arnbjörg kaupir notuð barnaföt af fólki á kílóverði og hafa viðtökur verið mjög miklar og góðar.

Opið: MÁNUD. - FIM FRÁ 12-17 EN FÖSTUDAGA FRÁ 12-15 - Sími 6161412


Greindarskertir lögreglumenn?

Góður vinur minn sagði farir sínar ekki sléttar.
Hann hefði nýverið farið eftir skemmtilegt matarboð hjá vini sínum,á sinn uppáhalds skemmtistað sem hafði opnað fyrir rúmu ári síðan á höfuðborgarsvæðinu.

Eftir skamman tíma inni á staðnum,vildi ekki betur til en það að hann er tekinn harkalega og fjarlægður af dyravörðum og síðan lögreglumönnum og farið með hann á lögreglustöð.

Hann segist eftir á ekki muna allt í smáatriðum,hann væri dagsfarsprúður maður og ekki vanur að abbast upp á annað fólk,en furðaði sig á hörkunni sem var beitt og misþyrmingunum sem hann mátti þola af hendi lögreglumannanna,það hefði verið snúið upp á handlegginn aftur fyrir bak,úlnliður hefði verið krepptur og þvingaður aftur,svoleiðis við óbærilegan sársauka,hann var með kúlu á höfði,búinn að vera með höfuðverk alveg síðan,krambúleraður í andliti og á höndum,hann gat ekki beitt hægri handleggnum sem skyldi og allur væri hann meira og minna úr lagi genginn og var ekki vinnufær í fjóra til fimm daga á eftir,svo voru vönduð jakkaföt eyðilögð í átökunum.

Hann undrar sig á hörkunni sem beitt var á venjulegt fólk,fyrir einhverjar litlar sem engar sakir og jafnvel upplognar.

Hvernig er þá farið með stórhættulegt fólk svo sem uppdópaða einstaklinga sem er viti sínu firrt og rúið allri dómgreind,hvaða meðferð fær það?

Ætli sé ekki til einhver vitsmunaleg taktík sem er notuð við svona aðstæður,svo sem einhver sálfræði til þess að róa niður aðstæður eða jafnvel að tala vinarlega til fólks sem talið er til vandræða.

Getur það verið að í lögreglunni séu einstaklingar sem fá útrás fyrir sínar ankannalegu hneigðir með þessum hætti?

Getur það virkilega verið svo,að niðurskurður á fjármagni til löggæslu sé farið að bitna á andlegu atgervi lögreglumanna og álagið sé orðið svo mikið að það setji allt úr skorðum.

Þessi vinur minn sagði,að hér áður fyrr hefði oft verið talað um það,að í lögregluna veldust einungis greindarskertir einstaklingar sem væru rúnir öllum hæfileikum,nema ef væri,til að beita líkamlegu afli og til átaka.

Ég spyr vin minn hvort hann ætli ekki að fara í skaðabótamál vegna þessa,en hann segir það vera algjörlega tilgangslaust,þeir passi upp á hvern annan þarna.

Ég hef alltaf trúað því segir hann,að ef einhver gerir öðrum eitthvað illt,að þá muni honum hefnast fyrir það,þótt síðar verði,það muni bara gerast af sjálfu sér.

Á vef BSRB stendur meðal annars eftirfarandi:

Hæfni og áhætta verði metin til launa hjá lögreglunni

Lögreglumenn krefjast þess því, í ljósi þess sem að ofan greinir, að þær takmarkanir sem þeim eru settar með sinn frítíma og auknar skyldur vegna t.a.m. aukavinnu og skerðingar á atvinnufrelsi í frítíma sínum, sem hljóta að teljast til skertra mannréttinda, að slíkt verði metið að fullu til launa og að auki að sú ábyrgð, hæfni og áhætta sem starf lögreglumanns krefst og í því felst endurspeglist í launkjörum lögreglumanna en þannig er því aldeilis ekki farið í dag.

Ef að er gáð þá hefur ýmislegt komið upp hjá lögreglunni:

Lögreglumaður greiði skaðabætur

Hæstiréttur skítur upp á bak

Lögreglan er pólitísk – fasismi er fasismi

Ólíklegt að 9-menningar verði dæmdir

Þú kannt að verða dæmdur

Dómur fallinn, Lögreglumaður dæmdur.

Lögreglumaður í skilorðsbundið fangelsi fyrir ólögmæta handtöku

Dómar í "skatt-svikamálum", Ekki sama Jón og séra Jón
mbl.is Verður sleppt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Milljóna veisluhöld á niðurskurðartímum

Það er brýnt að fólk standi saman gegn óréttlætinu og bullinu og mæti á mótmælafundinn á Austurvelli í dag kl. 14.00,þegar alþingi kemur saman eftir fundarhlé.

Hvað finnst fólki til dæmis um kokteilveisluna sem Sturla Jónsson bílstjóri,smyglaði sér inn í (það var viðtal við hann í beinni á útvarpi Sögu rétt fyrir hádegi) og var vísað á dyr,á vegum þings norðurlandaráðsins,sem talin er kosta 50 milljónir,en þarna var boðið upp á kampavín,kavíar og alls kyns fokdýrar krásir?

Sama daginn og veislan var haldin (í gær miðvikudag) þurftu nokkur hundruð manns að bíða eftir matargjöf frá líknarfélögum.
mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband