Rúv,takk fyrir uppbyggilega og góða kvikmynd!!

Sjónvarpsstöð allra landsmanna sýndi danska sjónvarpsmynd í gærkvöldi sem fjallaði um glæpastarfsemi í Danmörku,í sem stystu máli þá hætti ég að horfa þegar átti að fara að skera niður lík manns,eins og í sláturhúsi væri.

Sjónvarpsstjóri Rúv fékk nýverið sent bréf frá einum skattgreiðanda þessa lands þar sem hann gagnrýndi sjónvarpsstjórann harðlega fyrir efnisval í sjónvarpi,en hann fékk til baka svar þar sem dylgjað var um heilsufar gagrýnandans.

En nú er spurningin með menningarlega hlutverk og skyldur Rúv,fellur svona viðbjóður eins og var á dagskránni í gærkvöldi,undir þann lið eða er hægt að bjóða okkur upp á hvað sem er,kannski vegna þess að það er svo ódýrt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband