Horfin frétt um Dögg,fékk Dv.is hótun?

91726066Tölvutæknin er þannig í dag að það er hægt að sjá og lesa fréttir á öllum vefmiðlum sem eru jafnvel nokkurra ára gamlar,það er mjög jákvætt.

Fyrir nokkrum dögum kom frétt á Dv.is sem fjallaði um fréttagrein á Fréttatímanum um svik Daggar Pálsdóttur við verkatakafyrirtækið Saga verktakar.

Þar var meðal annars skrifað:

Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur hafa úrskurðað að Dögg beri að greiða verktökunum rúmlega 31 milljón króna vegna verksins en framkvæmdir við þessar breytingar hófust í janúar 2007 og lauk í september sama ár.

Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður og landsdómari, glatar lögmannsréttindum sínum verði hún persónulega gjaldþrota. Dögg skuldar verktakafyrirtækinu Saga verktakar 31 milljón króna vegna umfangsmikilla breytinga á tveimur íbúðum í eigu Daggar og sonar hennar.

Þegar kom að skuldadögum hafi Dögg á fundi hjá sýslumanni óskað eftir að fá þrjár vikur til að verðmeta íbúð sem hún á. Sýslumaður veitti vikufrest og ætlaði að meta íbúðina sjálfur. Með þessu slapp Dögg við árangurslaust fjárnám og gjaldþrot. Í millitíðinni segja verktakarnir Orri Blöndal og Sumarliði Már Kjartansson hjá Saga verktökum að Dögg hafi sótt um skuldaaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. Með því hafi hún komið sér í var næstu mánuði því allir sem sækja um greiðsluaðlögun komast í greiðsluskjól og ekki er hægt að ganga að eignum þeirra á meðan.


Sú spurning kemur sjálfkrafa upp í hugann,hvort að Dv.is sitji undir hótunum vegna tiltekinnar
greinar.

Hitt er svo umhugsunarefni að nú er búið að gefa fordæmi fyrir því að hleypa öllum þeim sem eru í fjárhagsvandræðum vegna svikinna greiðslna jafnvel þó að hæstiréttur hafi dæmt kröfu greiðandann til þess að greiða,í skjól hjá stjórnkerfinu þ.e.a.s umboðsmanni skuldara.

Nú kemur skriða af vafasömum tilfellum inn á borð hjá umboðsmanni skuldara og var þó nóg fyrir af óleystum málum.

Hér má sannreyna það að greinin finnst ekki lengur hjá Dv.is

 Ég vil vekja athygli á greininni um Dögg Pálsdóttur á Dv.is og í Fréttatímanum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband