VMST auglýsir eftir ódýru vinnuafli

vinnumadurÞað vill svo til að Vinnumálastofnun stendur fyrir því að auglýsa á vef sínum,eftir ódýru vinnuafli.

Ég er sjálfur búinn að upplifa þetta,því þau fyrirtæki sem þarna auglýstu og ég hafði samband við vegna atvinnu,voru að bjóða langt undir lágmarkstöxtum,en það er skýrt brot á kjarasamningum.

Það er þannig að þessi fyrirtæki auglýsa ekki í öðrum fjölmiðlum,sjálfsagt til þess að láta reyna á það fyrst,hvort ekki fáist ódýrt vinnuafl í gegnum vef VMST,en það virðist vera sem VMST sé ekkert að athuga hvort verið sé að fylgja kjarasamningum eða brjóta á skjólstæðingum þeirra.

Það virðist ekki vera samstarf á milli stéttarfélaganna og VMST varðandi þetta,eftir því sem ég kemst næst.

Þarna er ein vitleysan enn sem tengist þessari stofnun og var þó alveg nóg fyrir.

Það hefur verið talað um það manna á milli að það fækki lítið atvinnuauglýsingunum,því munurinn á milli lágmarkslauna og atvinnuleysisbóta sé svo lítill.

Svo er annað,að vinnuveitendur senda þá heim fyrst sem eru á hæstu laununum,í sumum tilfellum hafa útlendingar gengið fyrir vinnu og íslendingarnir verið sendir heim.

Það er vonandi að stéttarfélögin geri eitthvað róttækt í þessum málum.
mbl.is Mr. X kaupir raðhúsalengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Mætið á Austurvöll á mánudag, krefjið Jóhönnu um loforðið FRJÁLSAR HANDFÆRA VEIÐAR,

sem leysa atvinnu og fátæktar vanda Íslendinga!

Aðalsteinn Agnarsson, 30.10.2010 kl. 12:22

2 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Kæri Kristján, síðasta setningin í bloggi þínu hlýtur að vera brandari. "Það er vonandi að stéttarfélögin geri eitthvað róttækt í þessum málum." Það eru ár og dagar síðan að þessi stéttarfélög hættu að gæta hagsmuna sinna félaga. Verkalýðsforystan er of upptekin við að hanga í afturendanum á SA.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 30.10.2010 kl. 15:48

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband